Árshátíð Menntaskólans á Akureyri verður haldin í kvöld í íþróttahöllinni. Mikið er viðhaft eins og venjulega og undirbúningur og æfingar hafa staðið yfir undanfarna daga og vikur. Meðal annars voru nemendur 4. bekkjar að búa sig undir hátíðina í Höllinni í gærkvöld.