Snorri Guðvarðarson málar á Kennarastofu MA
Snorri Guðvarðarson málar á Kennarastofu MA

Í dag er réttur mánuður þar til skóli verður settur.

Í sumar hefur verið unnið að viðhaldi og endurbótum úti sem inni, meðal annars Hólar málaðir utan og einnig gangarnir á efri hæði Gamla skóla og eldhús og matstofa á Kennarastofu. Miklar framkvæmdir hafa líka verið á Möðruvöllum, á Hólum og í Íþróttahúsi MA.

Skrifstofur skólans verða opnaðar 15. ágúst, er sumarleyfi lýkur, en skólinn verður settur fimmtudaginn 8. september, eins og nánar verður tilkynnt síðar.

Nemendur og kennarar: Njótið þess sem eftir er af sumarleyfinu.