Starfsfólk á námskeiði
Starfsfólk á námskeiði

Kennarar eru komnir til starfa að loknu sumarleyfi auk annars starfsfólks. Þetta er ögn fyrr en venjulega, en starfsmenn eru sérstaklega boðaðir til námskeiðs í nýjungum og breytingum á tölvufyrirkomulagi skólans. Með því er verið að sameina skjalaaðgang og greiða fyrir einfaldari samskiptum og samvinnu á neti og aðgangi að skjölum og efni hvaðan sem er. Þetta námskeið og annar undirbúningur og skipulag komandi annar stendur alla þessa viku. Húsþing MA er á fimmtudaginn en að öðru leyti eru fimmtudagur og föstudagur ætlaðir til lokaundirbúnings annarinnar.

Myndin var tekin á námskeiði í kjallara Möðruvalla í morgun.