Í anddyri Hóla er heilmikið samsafn af óskilamunum frá síðasta ári, alls konar fatnaður og skór, sem skilið hefur verið eftir í húsum skólans.

Nemendur eru hvattir til að skoða þetta óskiladót og taka það sem þeir kunna að eiga. Það sem eftir verður endar hjá Rauða krossinum eða Hjálpræðishernum.