Ugla (mynd af vef)
Ugla (mynd af vef)

Uglusjóður, Hollvinasjóður MA auglýsir styrki til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 30. apríl.

Við brautskráningu 17. júní nk verða í fimmta sinn veittir styrkir úr UGLUNNI, Hollvinasjóði MA. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að nýbreytni í námsframboði og kennsluháttum og styðja við hverskonar þróun og nýsköpun nemenda og starfsfólks skólans. Gæta skal að fjölbreytni við ákvörðun styrkveitinga, þannig að styrkir séu ekki veittir sama eða sambærilegu verkefni til lengri tíma. Nemendur og starfsmenn skólans geta sótt í sjóðinn.

Kostnaðar- og verkáætlun skal fylgja umsóknum. Umsóknareyðublað, sem finna má hér, þarf að berast til Rannveigar Ármanndóttur (rannveig@ma.is) fyrir 30. apríl.

Allar upplýsingar um Uglusjóðinn eru hér.