Uglusjóður, Hollvinasjóður MA ítrekar auglýsingu um styrki til umsóknar. Umsóknareyðublað má nálgast hér.

Við brautskráningu 17. júní nk. verða í fjórða sinn veittir styrkir úr UGLUNNI, Hollvinasjóði MA. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að nýbreytni í námsframboði og kennsluháttum og styðja við hverskonar þróun og nýsköpun nemenda og starfsfólks skólans. Gæta skal að fjölbreytni við ákvörðun styrkveitinga, þannig að styrkir séu ekki veittir sama eða sambærilegu verkefni til lengri tíma. Nemendur og starfsmenn skólans geta sótt í sjóðinn..

Umsóknareyðublað, sem  finna má hér, þarf að berast til Rannveigar Ármanndóttur (rannveig@ma.is) fyrir 30. apríl