Á hátíðarfagnaði nýstúdenta í Íþróttahöllinni 17. júní síðastliðinn færði Freyja Steindórsdóttir nýstúdent skólanum að gjöf mynd sem hún hefur saumað að undaförnu.

Myndin er af Gamla skóla, gerð eftir ljósmynd Sverris Páls. Freyja ákvað að gera eftir henni krosssaumsmynd og vann að því í öllum lausum stundum meðfram námi, félagsstörfum og vinnu frá því í apríl 2016 fram í maí 2017.

Myndin er með 41.600 krosssaumssporum (þetta voru mörg s) og litir á saumagarninu eru 26. Hún er fagurlega innrömmuð og verður fundinn góður staður og er merkt MA 0248 í listaverkaskrá skólans.

 

Gamli skóli