Markmið
Nemendur eiga að a) kunna einingakerfi raunvísinda, b) sýna þekkingu á nokkrum eiginleikum efna s.s. eðlismassa, c) skilja nokkur hugtök gangfræðinnar s.s. hraði og hröðun, d) skilja krafthugtakið vel, e) kunna lögmál Newtons og þekkja hugtökin vinna, orka, afl og skriðþungi, f) kunna lögmál Pascals og lögmál Arkimedesar, g) kunna skil á helstu atriðum sem varða speglun og ljósbrot og hafa þekkingu og skilning á linsum og gerð sjóntækja og þekkja til starfsemi augans, h) hafa náð grundvallarleikni í dæmareikningi sem varðar gangfræði, lögmál Newtons, vinnu, orku, afl, skriðþunga og ljósgeislafræði, i) hafa gert nokkrar tilraunir þar sem reynir á vinnubrögð við mælingar, úrvinnslu og framsetningu gagna.
Leiðbeiningar
Mikilvægt er að lesa reglulega undir tíma það efni sem farið verður í. Kennslan fer fram í fyrirlestrum, dæmatímum og verklegum æfingum.
Fyrirlestrar – Farið verður yfir tiltekið efni í kennslubók og efnistök stundum dýpkuð frá því sem þar er. Umræður verða um efnið eftir því sem við á og spurningum svarað. Mikilvægt er að lesa reglulega heima það efni sem farið verður í, bæði undirbúa sig fyrir tíma og lesa efnið vandlega að loknum fyrirlestrum.
Dæmatímar – Nemendur reikni dæmi úr kennslubók eða dæmi frá kennara heima en farið verður yfir þau í dæmatímum eftir þörfum og því hvað tími leyfir. Heppilegast er að nemendur reikni sem flest dæmi á eigin spýtur til þess að öðlast skilning á námsefninu. Einnig er ýmislegt sem tekið hefur verið í fyrri stærðfræðiáföngum nauðsynlegt til að ná góðu valdi á dæmareikningi.
Verklegar tilraunir – Nemendur gera verklegar tilraunir, undir leiðsögn kennara. Skil á niðurstöðum í verklegu eru skv. ákvörðun kennara. Verklýsingar liggja frammi nokkru fyrir verklega tíma og er mikilvægt að undirbúa sig vel heima.
Verkefni
Skýrslur – Skila á tveimur skýrslum úr verklegum æfingum. Skiladagar eru nokkrum dögum eftir að tilraun er gerð en kennari gefur nánari upplýsingar þegar þar að kemur. Frekari upplýsingar um skýrslugerð koma fram í skriflegum leiðbeiningum og í tímum. Halda skal vinnubók á skipulagðan hátt.
Heimadæmi– Heimadæmum á að skila tvisvar (í kennsluviku 7 og 11) og verða skiladagar tilgreindir þegar dæmin verða lögð fyrir.
Tímapróf– Tímapróf verða lögð fyrir þrisvar á önninni. Það fyrsta í vikunni 5.–9. okt. (kennsluvika 4), það næsta í vikunni 9.–13. nóv. (kennsluvika 9) og það síðasta í vikunni 7.–11. des (kennsluvika 13). Í tímaprófunum verða bæði texti og dæmi.
Skyndipróf – Stutt skyndipróf verða lögð fyrir nokkrum sinnum á önninni. Verða þau lögð fyrir óundirbúið og verða að mestu úr því efni sem nýlega er búið að fara yfir, bæði texta og dæmum.
Tekið verður tillit til frágangs og framsetningar við mat á öllum verkefnum.
Síðast breytt: mið 15.jún 2011





