Markmið
Nemendur eiga að a) þekkja til hugtakanna leiðarar og einangrarar, straumur og hleðsla og kunna lögmál Coulombs, b) kunna undirstöðuatriði um rafsvið og kunna skil á tilraun Millikans, c) kunna lögmál Gauss um rafsvið og þekkja til rafsviðs fyrir mismunandi hleðsludreifingu, d) kunna skil á ýmsum tegundum þétta og hugtakinu rýmd fyrir mismunandi samsetningu þétta, e) kunna góð skil á hugtökunum straumur og spenna, lögmáli Ohms, viðnámi og eðlisviðnámi, leiðni og eðlisleiðni, áhrifum hitastigs á eðlisviðnám, og einnig kunna góð skil á afhleðslu þéttis í gegnum viðnám, f) kunna góð skil á ýmsum rafrásum og lögmálum Kirchhoffs, íspennu og eiginleikum straum- og spennumæla, g) hafa góð tök á undirstöðuatriðum, sem varða segulsvið, þar með talið lögmáli Laplace og segulkröftum, h) kunna vel skil á hreyfingu hlaðinna agna í rafsegulsviði og vita skil á Lorentzkraftinum, hraðasíu og massagreini, i) kunna góð skil á spani og kunna lögmál Faradays, j) þekkja vel til rafsegulsviðs og eiginleika þess, k) kunna skil á ýmsum riðstraumsrásum með viðnámum, spólum og þéttum, l) hafa gert nokkrar tilraunir þar sem reynir á vinnubrögð við mælingar, úrvinnslu og framsetningu gagna.
Leiðbeiningar
Mikilvægt er að lesa reglulega undir tíma það efni sem farið verður í. Kennslan fer fram í fyrirlestrum og dæmatímum sem ekki verða gerð skýr skil á og einnig með verklegum æfingum.
Fyrirlestrar– Farið verður yfir tiltekið efni í kennslubók og efnistök stundum dýpkuð frá því sem þar er. Einnig í viðbótarefni sem dreift verður. Umræður verða um efnið eftir því sem við á og spurningum svarað. Mikilvægt er að lesa reglulega heima það efni sem farið verður í, bæði undirbúa sig fyrir tíma og lesa efnið vandlega að loknum fyrirlestrum.
Dæmatímar – Nemendur reikni dæmi úr kennslubók eða dæmi frá kennara heima en farið verður yfir þau eftir þörfum og því hvað tími leyfir. Heppilegast er að nemendur reikni sem flest dæmi á eigin spýtur til þess að öðlast skilning á námsefninu. Einnig er ýmislegt sem tekið hefur verið í fyrri stærðfræðiáföngum nauðsynlegt til að ná góðu valdi á dæmareikningi.
Verklegar tilraunir – Nemendur gera verklegar tilraunir, undir leiðsögn kennara. Skil á niðurstöðum í verklegu eru skv. ákvörðun kennara. Verklýsingar liggja frammi nokkru fyrir verklega tíma og er mikilvægt að undirbúa sig vel heima.
Verkefni
Skýrslur – Skila á tveimur skýrslum úr verklegum æfingum. Skiladagar eru nokkrum dögum eftir að tilraun er gerð en kennari gefur nánari upplýsingar þegar þar að kemur. Frekari upplýsingar um skýrslugerð koma fram í skriflegum leiðbeiningum og í tímum. Halda skal vinnubók á skipulagðan hátt.
Heimadæmi – Heimadæmum á að skila fjórum sinnum (í kennsluviku 3, 6, 10 og 14) og verða skiladagar tilgreindir þegar dæmin verða lögð fyrir.
Tímapróf – Tímapróf verða lögð fyrir þrisvar á önninni. Það fyrsta í vikunni 12.–16. okt. (kennsluvika 5), það næsta í vikunni 2.–6. nóv. (kennsluvika 8) og það síðasta í vikunni 7.–11. des (kennsluvika 13). Í tímaprófunum verða bæði texti og dæmi.
Skyndipróf – Stutt skyndipróf verða lögð fyrir nokkrum sinnum á önninni. Verða þau lögð fyrir óundirbúið og verða að mestu úr því efni sem nýlega er búið að fara yfir, bæði texta og dæmum.
Tekið verður tillit til frágangs og framsetningar við mat á öllum verkefnum.
Síðast breytt: mið 15.jún 2011





