ENS3A04-raun

Framhaldsskólaeiningar: 4Þrep: 4Undanfari: ENS2C040Kennsluáætlun (PDF) Lýsing á efni áfangans: Þetta er fjórði áfangi í ensku á raungreinasviði.

ENS3A04 (raungreinasvið)

Framhaldsskólaeiningar: 4
Þrep: 4
Undanfari: ENS2C040
Kennsluáætlun (PDF)


Lýsing á efni áfangans:

Þetta er fjórði áfangi í ensku á raungreinasviði. Í þessum áfanga verður lögð aukin áhersla á lestur vísindatengdra greina og orðaforði aukinn markvisst. Æfingar verða unnar til að viðhalda málfræðiþekkingu og leikni í málnotkun, ritun og tali. Sérhæfðari textar tengdir áhugasviðum nemenda verða lesnir. Lögð verður meiri áhersla á tal en áður og fá nemendur þjálfun í flutningi á töluðu máli. Auknar kröfur verða gerðar varðandi ritunarverkefni og ritgerðir.


Lokamarkmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins þ.m.t. orðasamböndum og þverfaglegum orðaforða

  • notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins bæði munnlega og skriflega

  • hefðum sem eiga við um talað og ritað mál

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram

  • lesa margskonar gerðir texta, ekki síst fræðitexta, og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir því hverrar gerðar textinn er

  • nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum

  • geta tjáð sig af öryggi um margvísleg málefni, bæði almenn og persónuleg

  • skrifa margskonar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til

  • skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna, jafnvel um tiltölulega flókið efni ef hann þekkir vel til þess.
  • lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt, átta sig á tilgangi og afstöðu textahöfundar og bregðast við eða tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra
  • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
  • útskýra sjónarmið um efni sem er ofarlega á baugi og rekja ólík sjónarmið með og á móti
  • skrifað margskonar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig og skilja greinilega mun á talmáli og ritmáli

 

 

Svæði

Upplýsingar

Menntaskólinn á Akureyri

Eyrarlandsvegi 28  |  IS 600 Akureyri
S: +354 455 1555  |  F: +354 455 1556
Kennitala: 460269-5129

Ritstjóri: Sverrir Páll Erlendsson
Vefstjóri: Guðjón H. Hauksson

ma@ma.is


Skrifstofutími

Mánudaga - föstudaga 08.00 - 16.00
Lokað um helgar