ENS403

Áfangalýsing Áhersla er lögð á aukna fjölbreytni í lestrarefni, t.d. bókmenntaverk, tímarit og dagblöð. Áhersla á aukna færni í bókmenntafræðilegri

ENS403

Áfangalýsing

Áhersla er lögð á aukna fjölbreytni í lestrarefni, t.d. bókmenntaverk, tímarit og dagblöð. Áhersla á aukna færni í bókmenntafræðilegri greiningu. Sérstök áhersla á skipulega framsetningu hugmynda í rituðu og töluðu máli. Aukin áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda, m.a. við öflun upplýsinga. Sérstök áhersla er á munnlega tjáningu, sjálfstætt og í hópavinnu.

Markmið

Að nemandi

  • auki almennan orðaforða sinn og þekkingu á orðaforða og hugtökum bókmenntafræði
  • geti lesið og skilið fjölbreytilegt lesefni
  • auki færni sína við túlkun bókmenntaverka
  • geti tjáð sig á skipulegan, rökrænan og samfelldan hátt í rituðu og töluðu máli
  • auki færni sína í að tala fyrir framan hóp, um almenn og sértæk málefni, til sannfæringar jafnt sem upplýsingar
  • öðlist dýpri skilning á uppbyggingu málsins
  • kunni helstu formlegar málfræði- og setningafræðireglur enskrar tungu og kunna að beita þeim á viðeigandi hátt

Svæði

Upplýsingar

Menntaskólinn á Akureyri

Eyrarlandsvegi 28  |  IS 600 Akureyri
S: +354 455 1555  |  F: +354 455 1556
Kennitala: 460269-5129

Ritstjóri: Sverrir Páll Erlendsson
Vefstjóri: Guðjón H. Hauksson

ma@ma.is


Skrifstofutími

Mánudaga - föstudaga 08.00 - 16.00
Lokað um helgar