ENS502

Áfangalýsing Áhersla er lögð á alhliða færni í málinu, en sérstaklega á talmál og hæfni til að tjá eigin skoðanir á ensku. Einnig verður lögð áhersla á

ENS502

Áfangalýsing

Áhersla er lögð á alhliða færni í málinu, en sérstaklega á talmál og hæfni til að tjá eigin skoðanir á ensku. Einnig verður lögð áhersla á ritun. Þannig er gert ráð fyrir að nemendur hafi á valdi sínu helstu málfræði- og ritunarreglur í ensku og geti þannig skrifað svo til hnökralausan texta.

Skáldsaga sem fjallar um félagsleg, siðfræðileg og söguleg málefni verður lesin. Eftir föngum verður einnig horft á kvikmyndir / sjónvarpsþætti frá enskumælandi löndum. Textar, málfarsæfingar, hlustun og talæfingar verða í samhengi við þemu hvers tíma til að nemendur öðlist virkari og betri orðaforða.

Markmið

  • Nemandi geti lesið milli línanna og áttað sig á dýpri merkingu orða þegar fjallað er um efni sem hann hefur kynnt sér.
  • Nemandi geti hlustað á og skilið raunefni, t.d. kvikmyndir, fyrirlestra og fréttatengt efni.
  • Nemandi geti tjáð sig munnlega og rökrætt um sérhæft efni.
  • Nemandi sé fær um að vinna að hópverkefnum.
  • Nemandi sé fær um að standa einn fyrir framan hóp og flytja efni sem krefst útskýringa og svara við spurningum hlustenda.

Svæði

Upplýsingar

Menntaskólinn á Akureyri

Eyrarlandsvegi 28  |  IS 600 Akureyri
S: +354 455 1555  |  F: +354 455 1556
Kennitala: 460269-5129

Ritstjóri: Sverrir Páll Erlendsson
Vefstjóri: Guðjón H. Hauksson

ma@ma.is


Skrifstofutími

Mánudaga - föstudaga 08.00 - 16.00
Lokað um helgar