Uppfinningasemi mannsins hefur leitt fram aukið vald hans á náttúrunni og stórkostlegar breytingar
á samfélagi hans. Hjólið, prentlistin, fallbyssan, flugvélin, tölvan, strikamerkið, og internetið eru
dæmi um sköpunarhæfni mannsins sem við fjöllum um í áfanganum. Í áfanganum skoðum við
merkilegar uppfinningar, merkilega uppfinningamenn og aðferðunum sem þeir beittu í starfi sínu.
Kynnumst eins og hægt er aðferðum helstu leiðandi fyrirtækja eins og Apple, Pixar og Google. Við
lærum aðferðir skapandi hugsunar sem og aðferðir skapandi hópastarfs og beitum þeim á vandamál
sem við okkur blasa. Áfanginn byggir á umræðum og verkefnavinnu og námsmatið er símat.
Síðast breytt: mán 20.jún 2011





