Framhaldsskólaeiningar: 13
Þrep: 2
Undanfari: Enginn
Kennsluáætlun (PDF)
Lýsing á efni áfangans
Íslandsáfanginn - SAM (menningarlæsi) er áfangi á fyrsta ári. Honum er ætlað að auka áhuga, þekkingu og skilning nemenda á íslensku samfélagi, sögu þess og tungu. Í Íslandsáfanganum er höfuðáhersla lögð á að nemendur tileinki sér vönduð vinnubrögð við fjölbreytta verkefnavinnu. Verkefnin snúa fyrst og fremst að félagsfræði, íslensku og sögu, auk þess sem upplýsingatækni er samofin verkefnavinnunni. Nemendur þjálfast í að vinna með öðrum, þurfa að sýna frumkvæði og læra að bera ábyrgð á eigin námi. Sérstök áhersla er lögð á lestur og að nemendur þjálfist í að beita móðurmálinu, bæði í ræðu og riti. Áfanginn byggist að miklu leyti á verkefnavinnu í kennslustundum undir leiðsögn kennara. Námið fer fram utan skólans sem innan og sækja nemendur sér fróðleik og gögn á fjölbreytta vegu, m.a. í vettvangsferðum.
Lokamarkmið áfangans:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- helstu grunnhugtökum félagsfræðinnar, s.s. gildum, viðmiðum, félagslegu taumhaldi og félagsmótun
- sögu Menntaskólans á Akureyri og skólasögu Íslands í grófum dráttum
- byggðaþróun og atvinnulífi í eigin heimabyggð
- hvernig hægt er að hafa áhrif á eigið samfélag
- ýmsum sögulegum og félagsfræðilegum viðfangsefnum sem eru að einhverju leyti mismunandi frá ári til árs
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- að koma fram fyrir aðra og tala máli sínu á skýran og greinargóðan hátt
- að skrifa vandaðan texta samkvæmt reglum íslensks máls
- að afla sér upplýsinga sem tengjast efni áfangans með viðeigandi aðferðum (geti nýtt sér bóksöfn, upplýsingar á vef, viðtöl, o.fl.)
- heimildavinnu í samræmi við Hagnýt skrif (2003)
- grunnþáttum myndvinnslu
- vinna með öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni (hæfni) sem hann hefur aflað sér til að:
- sýna hugkvæmni við lausn verkefna
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
- sýna ábyrgð gagnvart náminu og skólanum
- meta upplýsingar og vinna með þær á þann hátt að þær skili honum þekkingu og aukinni hæfni til náms, m.a. við ritun heimildaritgerða, kynninga og annarra verkefna
- greina stöðu sína í því umhverfi sem hann lifir, bæði samfélaginu og sögulegu umhverfi.
- skilja samspil nokkurra helstu þátta í gangverki íslensks samfélags
Námsmat:
Fjölbreytt verkefnavinna.
Síðast breytt: þri 5.feb 2013





