Áfangalýsing
Áfanginn er þriggja eininga áfangi um lífeðlisfræði. Lífeðlisfræði fjallar um líffæri og líffærakerfi, starfsemi þeirra bæði eðlilega og afbrigðilega. Lífeðlisfræði mannsins er lögð til grundvallar en til samanburðar er að hluta farið í lífeðlisfræði annarra lífverutegunda.
Markmið
Meginmarkmið áfangans er að nemandinn geti að loknum áfanganum tengt þekkingu sína í lífeðlisfræði við eigin líffærastarfsemi og sé fær um að taka upplýstar ákvarðanir í daglegu lífi um eigin heilsu og lífsstíl.
Síðast breytt: fim 16.jún 2011





