Áfangalýsing
Áfanginn fjallar um samskipti lífvera í vistkerfum og hringrásir náttúrunnar. Enn fremur fjallar hann um náttúruvernd, auðlindanýtingu og alþjóðlega samninga og samskipti meðal þjóða.
Áfangamarkmið
Höfuðmarkmið áfangans er að nemendur öðlist þekkingu í grundvallar þáttum sen lúta að nýtingu náttúruauðlinda og möguleikum mannsins til að stjórna nýtingu þeirra á ábyrgan hátt. Nemendur eiga að áfanganum loknum að hafa þekkingu á alþjóðlegum reglum sem gilda um samskipti þjóða í umhverfisvernd og inntaki sjálfbærrar þróunar. Nemendur eiga að áfanga loknum að geta myndað sér skoðanir á málefnum sem tengjast vistfræði og náttúruvernd og vera færir um að leita sér þekkingar á þeim sviðum.
Síðast breytt: fim 16.jún 2011





