Áfangalýsing
Erfðafræðin (Genetics) verður sífellt mikilvægari grunngrein innan líffræðinnar og auk þess mikilvæg hjálpargrein á fjölmörgum sviðum mannlífsins s.s. í réttarlæknisfræði og sögu. Þá hafa umræður um erfðafræði í þjóðfélaginu aldrei verið meiri en nú og líklegt að sú þróun haldi áfram. Segja má að nú sé tími erfðafræðinnar.
Áfangamarkmið
Markmið áfangans er að kynna grunnhugtök og aðferðir erfðafræðinnar bæði á mendelsku- og sameinda-stigi og gera nemendur hæfa til að leysa verkefni þar sem hvoru tveggja kemur við sögu. Nemendur eru einnig undirbúnir fyrir háskólanám og líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi.
Síðast breytt: fim 16.jún 2011





