Framhaldsskólaeiningar: 5
Þrep: 3
Undanfari: Áfanginn er síðasti áfanginn á náttúrufræðikjörsviði raungreinasviðs.
Kennsluáætlun (PDF)
Lýsing á efni áfangans:
Farið er yfir kjarnaskiptingar og helstu einkenni mendelskra erfða og erfða á sameindastigi og grunn stofnerfðafræði. Þannig er gangur ríkjandi og víkjandi gena við mismunandi aðstæður skýrður. Lýst er gerð og eiginleikum gena og litninga og hlutverki kjarnsýra í heilkjörnungum, dreifkjörnungum og veirum. Farið er yfir reglu Hardys og Weinbergs og notagildi hennar. Nemendur leysa fjölmörg verkefni sem skýrir þeim gang erfðanna.
Lokamarkmið áfangans:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- kjarnaskiptingu
- helstu einkennum mendelskra erfða og erfða á sameindastigi
- grunni stofnerfðafræði
- gangi ríkjandi og víkjandi gena við mismunandi aðstæður
- hlutverki kjarnsýra í heilkjörnungum, dreifkjörnungum og veirum
- reglu Hardys og Weinbergs og notagildi hennar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skýra út tengsl arfgerða og svipgerða
- skýra út einföld dæmi erfðatækninnar
- lýsa í máli og myndum einstökum fræðilegum þáttum erfðafræðinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- segja fyrir um árangur eingena og fjölgena erfða
- tengja saman DNA og erfðir út frá próteinmyndun
- móta sér rökstudda niðurstöðu í siðfræðilegum álitamálum
Síðast breytt: mán 13.maí 2013





