Áfangalýsing:
Áhersla er lögð á að nemendur kynnist myndsköpun á sem breiðustum grunni og nái að vinna með
sem flesta þætti í eigin myndsköpun á skapandi hátt og sjálfstæðan hátt. Kynning á
myndlistarmönnum og myndlistarstefnum verður fléttuð inní kennsluna þar sem við á. Nemendur
vinna allmörg smærri verkefni sem byggja á tækni og aðferðum og eitt stærra verkefni í lok
annarinnar þar sem hver nemandi velur sér viðfangsefni í samráði við kennara. Kennslan fer fram í
fyrirlestraformi, umræðum og sem verkleg kennsla.
Námsefni: Nemendur greiða 3500 kr. í efnisgjald en bókakostnaður er enginn.
Námsmat: Áfanginn er próflaus. Áhersla er lögð á símat og einnig skila nemendur inn verkefnum
vetrarins í lok annar til frekara námsmats. Vægi námsmats: Lokaverkefni 30%, önnur verkefni og
hugmyndavinna 60%, frágangur og framsetning á myndverkum og umgengni við þau efni og tæki
sem notuð verða 10%.
Síðast breytt: sun 19.jún 2011





