SAG2B04

Framhaldsskólaeiningar: 4Þrep: 2Undanfari: EnginnKennsluáætlun (PDF) Lýsing á efni áfangans: Hér er um að ræða annan söguáfanga Menntaskólans á

SAG2B04 - Saga

Framhaldsskólaeiningar: 4
Þrep: 2
Undanfari: Enginn
Kennsluáætlun (PDF)


Lýsing á efni áfangans:

Hér er um að ræða annan söguáfanga Menntaskólans á Akureyri. Hann er beint framhald af SAG2A5A og spannar það tímabil í sögu mannkyns og þjóðar sem kennt er við nútíma, þ.e. tímann frá frönsku byltingunni 1789 fram til líðandi stundar. Reynt verður að varpa ljósi á þá samfélagsþróun sem orðið hefur á sviði stjórnmála, búsetu, atvinnu- og efnahagslífs, jafnt innanlands sem utan, á þessu tímabili.

Lokamarkmið áfangans:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar  og skilnings á:

  • helstu aðferðum sögu sem fræðigreinar og námsgreinar
  • sögu Vesturlanda í grófum dráttum
  • helstu kenningum í stjórnmálum
  • helstu persónum sem hafa mótað söguna
  • helstu atburðum sem hafa haft áhrif á þróun samfélaga
  • mikilvægi gagnrýninnar hugsunar

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina orsakir og afleiðingar sögulegra atburða
  • afla sér heimilda um tiltekin viðfangsefni sögunnar
  • lýsa samskiptum ríkja og þjóðfélagshópa
  • lesa sagnfræðilega texta

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bera saman nútíð og fortíð
  • meta gildi og áreiðanleika heimilda, frásagna og sögulegra skýringa
  • draga lærdóm af sögulegum mistökum
  • skilja hvernig nútímasamfélög byggjast á fortíðinni
  • lesa og túlka kort, myndir og texta
  • afla sér upplýsinga með margvíslegum hætti og í ólíkum upplýsingamiðlum
  • stunda sjálfstæð og fræðileg vinnubrögð við umfjöllum sögulegra viðfangsefna
  • tengja sögu við aðrar fræðigreinar
  • fjalla um söguleg viðfangsefni með viðurkenndum aðferðum og kynna niðurstöður sínar á skipulegan hátt í ræðu og riti, t.d. ritgerð og / eða fyrirlestri

Svæði

Upplýsingar

Menntaskólinn á Akureyri

Eyrarlandsvegi 28  |  IS 600 Akureyri
S: +354 455 1555  |  F: +354 455 1556
Kennitala: 460269-5129

Ritstjóri: Sverrir Páll Erlendsson
Vefstjóri: Guðjón H. Hauksson

ma@ma.is


Skrifstofutími

Mánudaga - föstudaga 08.00 - 16.00
Lokað um helgar