Framhaldsskólaeiningar: 5
Þrep: 1
Undanfari: ÞÝS1A05
Kennsluáætlun (PDF)
Lýsing á efni áfangans:
Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Menningu, staðháttum og siðum þýskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna og lögð áhersla á viðeigandi samskiptavenjur. Nemendur eru áfram þjálfaðir í færniþáttunum tali, hlustun og ritun ásamt lesskilningi. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Auk þess er nemendum leiðbeint í notkun orðabóka og annarra hjálpargagna.
Gerðar eru meiri kröfur um sjálfstæð vinnubrögð og árangursríka námstækni.
Lokamarkmið áfangans:
Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:
- þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná hæfnimarkmiðum áfangans
- grundvallarþáttum þýska málkerfisins
- framburðarreglum og tónfalli
- þýskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu og siði þjóðanna
- samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum
Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja einfaldar setningar, spurningar og upplýsingar sem tengjast daglegum athöfnum hans
- skilja einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli
- skilja stutta texta þar sem sagt er frá daglegu lífi, atburðum og tilfinningum eða óskað er eftir upplýsingum
- greina lykilatriði í stuttum textum, blaða- og tímaritsgreinum
- afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga
- lýsa reynslu eða skoðun, hlutum og fólki
- koma með uppástungur, afsaka sig og biðja leyfis
- spyrja og svara einföldum spurningum um liðna atburði
- skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir
- skrifa einföld persónuleg bréf, stuttar frásagnir og greina frá liðnum atburðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hlusta á og fara eftir leiðbeiningum, skilaboðum og tilkynningum sem tengjast daglegum athöfnum og bregðast rétt við
- leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
- tileinka sér meginefni í textum um daglegt líf og atburði, ásamt textum um menningarleg málefni
- takast á við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
- miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
- miðla á einfaldan hátt efni sem hann hefur tileinkað sér í áfanganum
- skrifa um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu
- skipuleggja nám í áfanganum og námsaðferðir við hæfi
- meta eigið vinnuframlag og framfarir í málinu
- sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu
Síðast breytt: þri 13.sep 2011





