Áfangalýsing
Orðaforði og málnotkunarreglur sem komið hafa fram í undanförum eru rifjaðar upp eftir því sem þurfa þykir og haldið ný atriði æfð. Áfram er lögð áhersla á samtalsæfingar í para- og hópvinnu og nemendur nú látnir segja skoðanir sínar á málefnum. Lögð er áhersla á að nemendur fái innsýn í aðstæður ungs fólks í þýskumælandi löndum. Ennfremur er fjallað um fjölskylduna, heimilishald, vinnu og starfsumhverfi, mat og veitingahús, jólahald og sögu Þýskalands frá 1945 að falli Berlínarmúrsins. Lesin er stutt skáldsaga sem tengist falli múrsins. Áfram eru nemendur hvattir til þess að nýta sér upplýsingatækni í námi sínu og einnig til að nýta áfram þýsk-þýskar orðabækur við vinnu sína.
Áfangamarkmið
Hlustun
- geti skilið öll almenn fyrirmæli kennara á þýsku í kennslustofunni
- geti skilið daglegt talmál þegar talað er við hann hægt og skýrt með almennum algengum orðaforða um málefni er varða daglegt líf
- geti greint megininntak orðræðu um efni sem verið hefur til umfjöllunar þegar talað er á eðlilegum hraða við aðstæður þar sem hljóð í umhverfi torveldar ekki skilning
Lestur
- auki færni sína í að læra nýjan orðaforða
- geti lesið til skilnings létta texta með almennum orðaforða er tengjast daglegu lífi í starfi og leik
- geti lesið og skilið meginefni lengri texta og stuttra ljóða með almennum orðaforða
- geti dregið út lykilorð til að glósa
- geti nýtt sér orðabækur við upplýsingaöflun
Tal
- hafi á valdi sínu að nota þýsku í öllum almennum samskiptum sínum við kennara í kennslustofunni nema þegar flókinna útskýringa er þörf
- geti tjáð sig munnlega í einföldum setningum um afmarkað efni sem verið hefur til umfjöllunar, t.d. efni sögunnar sem lesin er
- geti tjáð eigin skoðanir um efni sem fjallað hefur verið um
- geti beitt málnotkunarreglum nokkuð rétt í munnlegri orðræðu
Ritun
- geti tjáð sig skriflega með réttri stafsetningu í aðal- og aukasetningum um efni sem verið hefur til umfjöllunar
- geti skrifað persónuleg sendibréf á viðeigandi hátt (ávarp, kveðjur) um efni sem tengist honum sjálfum og atburðum í daglegu lífi, persónulýsingum, fyrirætlunum og væntingum
- geti skrifað stuttra ritgerð
- geti tjáð sig skriflega um myndir eða stuttar myndasögur
- geti beitt málnotkunarreglum rétt í æfingum af mismunandi gerð
Síðast breytt: þri 27.sep 2011





