Áfangalýsing
Í þessum áfanga er miðað að því að nemendur haldi við málfræðiþekkingu frá fyrri áföngum með munnlegri og skriflegri þjálfun og lokið verður við málfræðiatriði sem eftir eru. Orðaforði daglegs lífs er dýpkaður og aukinn og meiri áhersla er lögð á umfjöllun um valin málefni líðandi stundar sem eru í fréttum erlendis og/eða hér á landi. Að hluta eru verkefni valin af nemendum þannig að efnið standi þeim nær og sé í samræmi við áhugasvið þeirra og fjallað verður m.a. tísku og tíðaranda. Í áfanganum verður lesin óstytt skáldsaga um seinni heimstyrjöldina, mannleg samskipti, ást og fordóma. Nemendur verða í netsamskiptum við þýskunemendur í öðrum löndum og eru hvattir til þess að nýta sér upplýsingatækni í námi sínu og einnig til að nýta áfram þýsk-þýskar orðabækur við vinnu sína.
Síðast breytt: fim 16.jún 2011





