Almenn braut er starfrækt við Menntaskólann á Akureyri. Hún er tvískipt, hraðlína er ætluð nemendum með háar einkunnir úr 9. bekk. Hraðlínan er sérstakur, fámennur bekkur. Stoðlína er ætluð nemendum sem vantar herslumuninn á að uppfylla skilyrði til almennrar inngöngu. Þeir fá stoðkennslu en dreifast að öðru leyti í bekki.
Hraðlína
Hraðlínan er fyrir nemendur sem koma beint úr 9. bekk grunnskóla og eru hraðfara.
Stoðlína
Stoðlínan er fyrir nemendur sem koma úr 10. bekk grunnskóla en eru á mörkunum að standast kröfur um inngöngu.
Síðast breytt: mið 3.okt 2012





