Hraðlína

Við Menntaskólann á Akureyri er á fyrsta námsári almenn bóknámsbraut, hraðlína, þar sem teknir eru inn nemendur sem lokið hafa 9. bekk grunnskóla. Þeir

Hraðlína

Við Menntaskólann á Akureyri er á fyrsta námsári almenn bóknámsbraut, hraðlína, þar sem teknir eru inn nemendur sem lokið hafa 9. bekk grunnskóla. Þeir ljúka á árinu reglulegu námi fyrsta bekkjar að viðbættum nokkrum námsþáttum sem fylgja námi í 10. bekk grunnskóla. Að loknu námi þennan fyrsta vetur ganga þeir til áframhaldandi náms eins og aðrir nemendur í fyrsta bekk. Með þessu ná góðir nemendur að takast á við krefjandi verkefni og flýta námi sínu til stúdentsprófs um eitt ár.

UMSÓKNARGÖGN FYRIR SKÓLAÁRIÐ 2013 - 2014

Skilyrði til inntöku á hraðlínu almennrar bóknámsbrautar:

  • Nemandinn hafi hlotið yfir 8 í einkunn í níunda bekk grunnskóla.
  • Umsögn frá grunnskóla um námslega stöðu umsækjandans og mat skólans á því hvort þetta val telst vera raunhæfur kostur fyrir hann.
  • Bréf frá umsækjanda þar sem hann gerir grein fyrir hvers vegna hann sækir um þetta nám og af hverju hann telur sig undir það búinn.
  • Viðtal við foreldra og nemendur.
  • Fjöldi nemenda brautinni er takmarkaður og skólinn mun velja þá sem hann telur hæfasta hverju sinni.

Námsefni/áfangar:

Nemendur á hraðlínu taka sömu áfanga og aðrir nemendur á fyrsta ári en hver námseining getur verið heldur viðameiri en í 1. bekk þar sem bætt er við námsefni 10. bekkjar. Í stundaskrá er gert ráð fyrir heimanámstímum í umsjá kennara.

Kennsluhættir:

Fjölbreyttar kennsluaðferðir eru notaðar og leitast við að miða kennslu sem mest við þarfir hvers og eins. Hugmyndafræðin um einstaklingsmiðað nám er nýtt þar sem hægt er að koma henni við. Námsbrautarstjóri og kennarar hafa reglulega fundi til að samræma störf sín og áherslur og leitast við að haga kennsluaðferðum þannig að námið verði annars vegar fjölbreytilegt og áhugavert og hins vegar krefjandi fyrir alla nemendur.

Foreldrasamstarf:

Meira og virkara foreldrasamstarf er í tengslum við almennu brautina en venja er til í framhaldsskólanum. Foreldraviðtöl eru einu sinni á önn auk þess sem foreldrar koma í kynningarheimsókn að hausti.

Námsframvinda:

Sömu reglur gilda í meginatriðum um framvindu náms á hraðlínu og annarra nemenda á fyrsta ári. Nemandi þarf að standast alla undanfara til að geta hafið nám á öðru ári við MA.

Annað:

Umsjón með nemendum er mikilvæg á þessari braut. Áhersla er lögð á  örugga móttöku nemendanna, stuðlað að góðum félagatengslum og samstöðu í hópnum.

Svæði

Upplýsingar

Menntaskólinn á Akureyri

Eyrarlandsvegi 28  |  IS 600 Akureyri
S: +354 455 1555  |  F: +354 455 1556
Kennitala: 460269-5129

Ritstjóri: Sverrir Páll Erlendsson
Vefstjóri: Guðjón H. Hauksson

ma@ma.is


Skrifstofutími

Mánudaga - föstudaga 08.00 - 16.00
Lokað um helgar