Tölvudeild MA

Aðgangur að tölvukerfi Allir nemendur og allir starfsmenn MA hafa aðgang að eigin netfangi (@ma.is). Notandanafn viðkomandi í tölvukerfinu er það

Ýmislegt gagnlegt

Aðgangur að tölvukerfi

Allir nemendur og allir starfsmenn MA hafa aðgang að eigin netfangi (@ma.is). Notandanafn viðkomandi í tölvukerfinu er það nafn/númer sem stendur fyrir framan @merkið. Þetta notandanafn og lykilorð veitir aðgang að eftirfarandi:

  • tölvupósti
  • tölvum skólans
  • interneti í fartölvum
  • prentun (sjá http://prentun.ma.is - aðeins aðgengilegt innan MA)
  • haugnum (aðgengilegt í windows á slóðinni filehaugurinn og í Mac/Linux á smb://file/haugurinn)
  • sérstöku svæði fyrir einkaskjöl (aðgengilegt í windows á filehomenotandanafn og Mac/Linux á smb://file/home/notandanafn).


Frjálst og opið

Menntaskólinn á Akureyri notast að megninu til við frjálsan og opinn hugbúnað. Allir netþjónar eru keyrðir á Linux og þær útstöðvar sem standa nemendum og kennurum til boða í stofum eru keyrðir á Ubuntu (Linux).

Skrifstofuhugbúnaðurinn sem er notaður í MA er þannig ekki Microsoft Office eins of víðast er í notkun, heldur er notast við OpenOffice.org og LibreOffice. Þessi áhersla á frjálsan og opinn hugbúnað er ekki átakalaus því oft og iðulega koma upp vandræði þegar uppsetning hegðar sér ekki eins milli kerfa. Þessum árekstrum má hins vegar fækka verulega með því að stilla Microsoft Office þannig að hugbúnaðurinn notist við opnar leturgerðir og vista skjöl með endingunum .doc, .xls eða ppt (sem sagt ekki .docx, xlsx, eða pptx). Í nýrri útgáfum af Microsoft Office er líka hægt að stilla hugbúnaðinn þannig að hann visti á opnu skjalasniði (ODF). Þetta ásamt því að senda frá sér fullunnin skjöl á PDF-sniði getur komið manni hjá ýmsum vanda.

Svæði

Upplýsingar

Menntaskólinn á Akureyri

Eyrarlandsvegi 28  |  IS 600 Akureyri
S: +354 455 1555  |  F: +354 455 1556
Kennitala: 460269-5129

Ritstjóri: Sverrir Páll Erlendsson
Vefstjóri: Guðjón H. Hauksson

ma@ma.is


Skrifstofutími

Mánudaga - föstudaga 08.00 - 16.00
Lokað um helgar