Schola Akureyrensis
Valgreinar 2010-2011

Valgreinar 2010-2011

Nemendur standa nú frammi fyrir því að skrá sig á valgreinar fyrir næsta skólaár. Sérstakur bæklingur hefur verið tekinn saman um greinar í boði.

Nemendur í MA þurfa að ljúka samtals 12 einingum í frjálsu vali. Í bæklingnum eru lýsingar á
þeim áföngum sem ykkur býðst að taka í frjálsu vali skólaárið 2010 – 2011. 

Frjálst val gefur nemendum tækifæri til þess að víkka eða dýpka þekkingu sína á ýmsum sviðum.
Hægt er að velja námsgreinar sem kenndar eru á öðrum námsbrautum skólans eða bæta við
áföngum í þeim greinum sem kenndar eru á eigin braut.  Af þessum sökum hafa sumir áfangar
undanfara en aðrir ekki.  Mikilvægt er að nemendur kynni sér kröfur um undanfara áður en þeir
velja áfanga.

Athugið:

  • Sú almenna regla gildir að nemendur eiga að standa við val sitt.
  • Í undantekningartilvikum geta nemendur sótt um til brautarstjóra að skipta um valgrein fyrstu viku annarinnar (síðasti dagurinn sem hægt er að sækja um slíkt er mánudagur í 2. kennsluviku) en þó er einungis tekið tillit til slíkra óska ef hópastærð þeirra valgreina sem um ræðir leyfir.
  • Nemendur geta ekki hætt í valgrein eftir að önn er hafin. Nemandi getur sagt sig úr valgrein áður en önnin hefst en aðeins ef hópastærð leyfir. Ef nemandi mætir ekki í próf í valgrein sem hann er skráður í, telst hann fallinn í viðkomandi fag.
  • Skólameistari getur veitt undanþágu frá þessum ákvæðum ef aðstæður nemenda breytast, t.d. vegna langvarandi veikinda, slysfara eða vegna dauðsfalls í fjölskyldunni.


b10


bs01
Þetta vefsvæði byggir á Eplica