Schola Akureyrensis
Skólinn
  • MA loftmynd

Menntaskólinn á Akureyri

Menntaskólinn á Akureyri er bóknámsskóli sem byggir á fornri hefð en leitast við að vera í fremstu röð framhaldsskóla á Íslandi. Stúdentar úr MA eiga að vera gjaldgengir í hvaða háskólanám sem er hvar sem er í veröldinni.

Hluti af hefð MA er afar öflugt félagsstarf, sem stýrt er og skipulagt af nemendum sjálfum. Metnaðarfullt og heilbrigt félagsstarf er ásamt traustu bóknámi gott veganesti á lífsins braut.

Nemendur skólans koma víða að og drjúgur hluti þeirra býr á heimavist, sem ekki er lengur hluti af skólanum, eins og var alla 20. öldina, heldur sjálfseignarstofnun, sem þjónar nemendum beggja framhaldskólanna á Akureyri, MA og VMA.

Hér á vefnum eru helstu upplýsingar um skólann og starf hans. Frekari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á netfangið ma@ma.is

Myndina hér tók Þórgnýr Dýrfjörð, gamall nemandi og kennari við MA, vorið 2009.

Einkunnarorð Menntaskólans á Akureyri eru: Virðing - víðsýni - árangur

Senda grein





b12
Þetta vefsvæði byggir á Eplica