- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Framhaldsskólaeiningar: 1
Þrep: 3
Undanfari: ÍÞR3B010
Nemendur eru í verklegum tímum í líkamsræktarsal, auk þess er í boði að notfæra sér útiaðstöðu s.s. að fara út að hlaupa. Nemendur útbúa sína eigin æfingaáætlun fyrir önnina í samráði við kennara og undir hans leiðsögn. Kennari leggur fyrir afkastamælingar og æfingaáætlun er miðuð m.a. niðurstöður mælinganna.
Í lok annar er aftur mælt og framfarir metnar. Þrisvar sinnum á önn stjórnar kennari tíma þannig að nemendur fái hugmyndir að fjölbreyttari æfingum og einnig vinna þeir í samvinnu við aðra nemendur.
Eitt af meginmarkmiðum áfangans er að nemendur geti unnið sjálfstætt, sett sér markmið og unnið markvisst að þeim. Nemendur geri sér grein fyrir að þeir beri ábyrgð á eigin heilsu og finni líkams- og heilsurækt sem hentar þeim.
Einnig er hugsunin að koma til móts við nemendur sem æfa afreksíþróttir þannig að þeir geti nýtt tímann og unnið í því að bæta sig og geta því unnið eftir æfingaáætlun frá sínum þjálfara.
Menntaskólinn á Akureyri
Eyrarlandsvegi 28
600 Akureyri
Kt. 460269-5129
Skrifstofutími
Mán - fim 08:00 - 13:30
Föstud 08:00 - 13:00
Lokað í hádeginu 12:00 - 12:30
Lokað um helgar
Ritstjórn: Brynjar K. Óttarsson, Eyrún Huld Haraldsdóttir og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir