Framhaldsskólaeiningar: 5
Þrep: 2
Undanfari: Enginn


Lýsing á efni áfangans

Grunnáfangi í sálfræði.  Í þessum áfanga kynnast nemendur fræðigreininni sálfræði, sögu hennar, nokkrum viðfangsefnum og helstu straumum og stefnum innan hennar. Megináhersla er á þróun greinarinnar á tuttugustu öldinni og til okkar daga. Kynntar verða aðferðir í rannsóknum bæði bóklega og verklega.

Lokamarkmið áfangans:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • mikilvægi við að beita vísindalegum aðferðum við rannsóknir
  • skilgreiningu á vísindalegri sálfræði og þróun sálfræðinnar sem vísindagreinar
  • helstu kenningarkerfum innan sálfræðinnar eins og sálgreiningu, atferlisstefnu, hugfræði, manhyggju og samfélagsmenningarlegu viðhorfi
  • hagnýtu gildi sálfræðinnar
  • helstu undirgreinum sálfræðinnar svo sem þroskasálfræði, félagssálfræði, afbrigðasálfræði og námssálarfræði
  • umhverfisþáttum og erfðum sem mótunanöflum mannshugans
  • útskýringum sálfræðinnar á nokkrum þáttum hugsunar og atferlis eins og minnis, náms, svefns, greindar og persónuleika
  • siðferði við rannsóknir

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • beita grunnhugtökum sálfræðinnar
  • útskýra helstu hugmyndir sem mótað hafa fræðigreinina
  • lýsa hugmyndum sálgreiningar um þroska persónuleikans
  • lýsa viðbragðsskilyrðingu og virkri skilyrðingu
  • gagnrýna greindarmælingar
  • skoða samhengi sálfræðinnar við aðrar vísindagreinar
  • útskýra eigið atferli og hugsun út frá hugmyndum nokkurra sálfræðistefna
  • lesa í og skilja niðurstöður mikilvægra rannsókna í sálfræði
  • tjá kunnáttu sína í orði og riti

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig á gagnrýninn hátt um afmarkaða efnisþætti sálfræðinnar
  • sækja þekkingu úr öðrum greinum til aukins skilnings á viðfangsefninu og yfirfæra þekkingu á aðrar greinar til þess að sjá vísindalegt samhengi
  • sýna sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum
  • afla, meta og nota heimildir á viðurkenndan hátt
  • gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis og erfða á eigin sjálfsmynd og annarra.
  • skilja samspil atferlis, hugsunar og tilfinninga
  • hagnýta sálfræðina í daglegu lífi á jákvæðan hátt sér og öðrum til framdráttar