Framhaldsskólaeiningar: 5
Þrep: 1
Undanfari: ÞÝS1B05


Lýsing á efni áfangans:

Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er lögð áhersla á að efla menningarvitund nemenda og staðháttum og siðum þýskumælandi landa er fléttað inn í kennsluna og áhersla lögð á viðeigandi samskiptavenjur. Nemendur eru áfram þjálfaðir í færniþáttunum tali, hlustun og ritun, jafnframt eru gerðar meiri kröfur um að þeir tileinki sér fjölbreyttan orðaforða með lestri lengri texta. Ný og flóknari málfræðiatriði eru tekin fyrir.

Gerðar eru meiri kröfur um sjálfstæð vinnubrögð nemanda og árangursríka námtækni.

Lýsing á efni áfangans:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • mannlífi, menningu og siðum í þýskumælandi löndum
  • samskiptavenjum og mismunandi notkun málsins eftir aðstæðum
  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná hæfnimarkmiðum áfangans
  • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
  • formgerð og uppbyggingu texta og mismuninum á töluðu og rituðu máli
  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná hæfnimarkmiðum áfangans

Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • fylgja aðalatriðum í samtali tveggja eða fleiri þegar rætt er um almenn efni og talað er skýrt og áheyrilega
  • fylgjast með frásögnum um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
  • fylgja söguþræði í einföldum/einfölduðum skáldsögum
  • greina aðalatriði í blaðagreinum og textum um almennt og sérhæfðara efni sem tengist áhugasviði hans
  • afla sér upplýsinga, t.d. með skimun lengri texta og lestri bæklinga, bréfa, dagblaða, upplýsinga á netinu o.fl.
  • segja frá og ræða við aðra á skýran hátt um liðna atburði, reynslu og áform
  • halda stutta kynningu á fyrirfram undirbúnu efni
  • skrifa samfelldan texta um ýmis efni s.s. endurminningu eða framtíðaráform
  • skrifa stöðluð bréf þar sem hann veitir eða biður um nákvæmar upplýsingar (t.d. svara auglýsingu eða sækja um vinnu)

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • hlusta á og fara eftir leiðbeiningum, skilaboðum og tilkynningum sem tengjast daglegum athöfnum og bregðast rétt við
  • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
  • fylgjast með frásögnum og erindum og ná aðalatriðum um kunnuglegt efni úr fjöl- og myndmiðlum
  • tileinka sér aðalatriðin í fjölbreyttum textum og geta dregið ályktanir af því sem hann les
  • takast á við tilteknar aðstæður í samskiptum, beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum og halda samtalinu gangandi
  • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu, vonum og væntingum
  • útskýra ákvarðanir og fyrirætlanir og rökstyðja mál sitt á einfaldan hátt
  • skrifa samfelldan texta um tiltekið efni og beita viðeigandi málfari
  • hagnýta þann orðaforða sem áfanginn byggir á í ræðu og riti
  • skipuleggja nám í áfanganum og námsaðferðir við hæfi
  • meta eigið vinnuframlag og framfarir í málinu
  • sýna aga, metnað, sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu