kynjafræði

Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: FÉLA3ST05 (eða 10 einingar í félagsfræði)
Í áfanganum fá nemendur kynningu á kynjafræði, jafnréttisbaráttu, rauðsokkum og femínisma. Þeir fá innsýn í margbreytileika mannlífsins og þjálfast í að skoða heiminn með kynjagleraugun á nefinu. Fjallað verður um sögu jafnréttisbaráttunnar, hinseginfræði fjölmiðla, ofbeldi, karlmennsku, vinnumarkaðinn og stjórnkerfið út frá kyni. Nemendur munu m.a. rýna í fjölmiðla, bækur og kvikmyndir og kynnast hugtökum kynjafræðinnar.

Þekkingarviðmið

  • helstu kenningum og hugtökum kynjafræðinnar
  • stöðu kynjanna í íslensku samfélagi, fyrr og nú
  • staðalmyndum um kvenleika og karlmennsku
  • kynjuðum neysluvenjum
  • klámi og áhrifum þess á kynheilbrigði
  • kynbundnu ofbeldi og mörgum birtingarmyndum þess.
  • áherslum hinsegin fræða

Leikniviðmið

  • beita grunnhugtökum kynjafræðinnar
  • setja upp kynjagleraugun, þ.e. skoða veröldina út frá sjónarhorni kyns og kynferðis
  • greina stöðu og staðalmyndir kynjanna í fjölmiðlaefni, námsefni og almennri umræðu
  • taka þátt í umræðum og koma skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri
  • beita gagnrýninni hugsun

Hæfnisviðmið

  • skilja helstu orsakir kynjaskekkjunnar samkvæmt hugmyndum kynjafræðinnar
  • taka þátt í samfélaginu með jafnrétti að leiðarljósi
  • sýna sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is