Lengri próftími

Nemendur geta sótt um að fá lengri próftíma á haust- og vorannarprófum til náms- og starfsráðgjafa. Nemendur fá auka 15 mínútur á hverja klukkustund í

Lengri próftími

Nemendur geta sótt um að fá lengri próftíma á haust- og vorannarprófum til náms- og starfsráðgjafa. Nemendur fá auka 15 mínútur á hverja klukkustund í prófi. Sækja þarf um lengri próftíma fyrir hverja próftíð.

Nemendur geta þurft lengri próftíma af eftirfarandi ástæðum:

  • hafa  greinst  með sértæka námsörðugleika s.s. dyslexíu
  • hafa búið lengi erlendis
  • eru af erlendu bergi brotnir
  • eru haldnir miklum prófkvíða
  • eiga við langvarandi veikindi að stríða eða tilfallandi
  • hafa aðrar greiningar sem eru hamlandi í námi þeirra


Umsókn um lengri próftíma þarf að berast eigi síðar en 1. desember fyrir haustannarpróf og 1. maí fyrir vorannarpróf. Umsóknareyðublað um lengri próftíma.

Sértækir námsörðugleikar – aðrar greiningar
Nemendur þurfa að skila greiningu til náms- og starfsráðgjafa,

Prófkvíði
Nemendur þurfa að hafa tekið þátt í prófkvíðanámskeiði eða skila vottorði frá sálfræðingi/ geðlækni um prófkvíða.

Veikindi
Nemendur geta sótt um lengri próftíma vegna langvarandi veikinda eða tímabundinna veikinda/erfiðleika og skila læknisvottorði.

Nemendur sem sækja um lengri próftíma verða að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa og skila umsóknum til þeirra.

Svæði

Upplýsingar

Menntaskólinn á Akureyri

Eyrarlandsvegi 28  |  IS 600 Akureyri
S: +354 455 1555  |  F: +354 455 1556
Kennitala: 460269-5129

Ritstjóri: Sverrir Páll Erlendsson
Vefstjóri: Guðjón H. Hauksson

ma@ma.is


Skrifstofutími

Mánudaga - föstudaga 08.00 - 16.00
Lokað um helgar