Föll og ferlar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÆR1AL05
Meginefni áfangans er hnitakerfið, mengi og fallafræði. Helstu efnisþættir eru hnitarúmfræði, ferlateikningar, lína, fleygbogi, hringur, mengi, bil, fallahugtök, lograr, nokkur mikilvæg föll, diffrun og útgildi. Aðaláhersla áfangans verður á þjálfun í dæmareikningi en einnig verður fjallað um hagnýtingu þessara þátta í öðrum greinum, s.s. viðskiptafræði, hagfræði og félagsfræði.

Þekkingarviðmið

  • hnitakerfinu og ferlateikningum
  • línu, fleygboga og hring
  • mengjum og mengjaaðgerðum
  • helstu fallahugtökum
  • veldis-, vísis-,algildis- og margliðuföllum ásamt ræðum föllum
  • logrum
  • markgildum
  • diffrun og diffurreglum
  • formerkjamyndum og staðbundnum útgildum
  • hagnýtingu diffurreiknings í öðrum greinum
  • táknmáli og reglum um framsetningu efnisins

Leikniviðmið

  • nota jöfnu línu, fleygboga og hrings til að reikna út helstu stærðir og kanna eiginleika þeirra
  • teikna gröf fyrir jöfnur og ferla falla
  • finna skurðpunkta grafa við ása hnitakerfisins sem og skurðpunkta tveggja grafa
  • nota mengjaaðgerðir og setja mengi fram á mismunandi hátt
  • finna skilgreiningar- og myndmengi ýmissa falla
  • vinna með algildi og leysa algildisjöfnur
  • nota logra og beita lograreglum
  • reikna einföld markgildi
  • diffra föll og einfalda afleiðurnar í vissum tilvikum
  • finna útgildi falla reiknilega og myndrænt
  • setja námsefnið fram skv. meginreglum stærðfræðilegrar framsetningar

Hæfnisviðmið

  • skrá lausnir sínar skipulega og útskýra þær skilmerkilega í mæltu máli
  • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu
  • vinna með merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu
  • beita gagnrýninni hugsun og sýna áræði, frumkvæði og innsæi við lausnir
  • beita skipulögðum aðferðum við að leysa verkefni og þrautir úr kunnuglegu samhengi, m.a. með því að setja upp jöfnur
  • klæða verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa það og túlka lausnina í samhengi við upphaflegt verkefni
Nánari upplýsingar á námskrá.is