Líffærafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF1GL05 og LÆSI2NÁ10
Áfanginn er einskonar kynning á og grunnur fyrir líffærafræði. Farið er í grunnhugtök hvað varðar líffærafræðileg heiti á stöðu og stefnu líffæra, holrúma og líkama. Í fyrri hluta áfangans er sjónum beint að stoðkerfi líkamans. Fjallað er um vefjagerð beina, vöðva og liða, festingar og afholur, aðra flokka, hlutverk þeirra og fræðiheiti. Í seinni hluta áfangans er farið í taugakerfið þar sem fjallað er um vefjagerð, skipulag og helstu virkni heila, mænu og tauga ásamt fræðiheitum innan þessa kerfis.

Þekkingarviðmið

  • helstu stefnu- og stöðuhugtökum líkamans
  • vefjagerð beina, vöðva og taugakerfis
  • helstu flokkun beina í beinagrindinni, fræðiheiti beina og hlutverki þeirra
  • nokkrum helstu vöðvum líkamans, fræðiheitum þeirra og virkni
  • flokkun og gerð liða
  • skipulagi taugakerfis og flokkun, gerð og starfsemi taugafrumna
  • helstu skiptingu heila og gerð mænu og tauga
  • blóð-heila hemli, virkni hans og mikilvægi

Leikniviðmið

  • þekkja og segja til um stefnu og stöðu einstakra líffæra og líffærahluta
  • þekkja mismunandi frumugerðir hinna ýmsu vefja og skilja starfsemi þeirra
  • skilja og sjá samhengi í notkun líffærafræðilegra fræðihugtaka og heita
  • þekkja mismunandi liðfleti líkamans
  • tengja gerð taugafrumna við virkni mismunandi hluta taugakerfisins

Hæfnisviðmið

  • gera grein fyrir helstu líffærafræðilegu stefnu- og stöðuhugtökum
  • þekkja byggingu beinagrindar og taugakerfis
  • nota þekkingu sína og leikni í áframhaldandi námi
  • útskýra starfsemi taugakerfisins og hlutverk einstakra þátta þar
  • skilja og geta greint viðbragðsboga
  • vinna sjálfstætt og nota fræðileg vinnubrögð
Nánari upplýsingar á námskrá.is