Kunngerð hafa verið úrslit í lokaáfanga efnafræðikeppninnar. Strákarnir okkar, Stefán Ármann Hjaltason og Atli Fannar Franklín, lentu ekki í verðlaunasætum og verða ekki í úrvalsliðinu sem keppir á Ólympíukeppninni í Azerbaijan í efnafræði á þessu ári. Þeir fimmtán nemendur sem tóku þátt í lokakeppninni fá viðurkenningar og efstu keppendurinir fá verðlaun við athöfn þegar keppnislið Íslands verður kynnt.