Gettu betur lið MA
Gettu betur lið MA

Fyrsta umferð Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, stendur yfir dagana 8. , 9. og 10. janúar og verður í beinni á Rás 2. Önnur umferð í útvarpi fer svo fram 17. og 19. janúar.

Lið MA keppir 10. janúar við lið Fjölbrautaskólans á Norðurlandi vestra. Viðureignin fer fram í Kvosinni í MA. Lið MA skipa Árni Stefán, Kjartan Valur og Sólveig Erla. 

Lið VMA keppir einnig í Kvosinni, við lið Flensborgarskóla.