Tómas Óli Ingvarsson og Sjöfn Hulda Jónsdóttir afhenda Önnu Björk Eðvarsdóttur, formanni Hringsins, …
Tómas Óli Ingvarsson og Sjöfn Hulda Jónsdóttir afhenda Önnu Björk Eðvarsdóttur, formanni Hringsins, styrkinn

Á hverju ári stendur skólafélagið Huginn fyrir góðgerðarviku en þá er með fjölbreyttum hætti safnað fé sem rennur til einhverra góðgerðarsamtaka. Nemendur kjósa hvaða félag verður fyrir valinu hverju sinni og í ár var það Barnaspítalasjóður Hringsins. Stjórn skólafélagsins notaði tækifærið um helgina þegar haldið var suður í MORFÍs til að afhenda styrkinn.