Fulltrúar frá Keili verða með kynningu á námsframboði skólans í Menntaskólanum á Akureyrimánudaginn 23. mars kl. 16:15 í stofu H9. Sérstök áhersla verður lögð á nám á háskólastigi, en í Keili er bæði hægt að leggja stund á tæknifræðinám til BS gráðu á vegum Háskóla Íslands og átta mánaða leiðsögunám í ævintýraferðamennsku í samstarfi við Thompson Rivers University í Kanada. Einnig verður kynnt vinsælt einka- og styrktarþjálfaranám, auk flugvirkjanáms og einka- og atvinnuflugmannsnáms við Flugakademíu Keilis.

Nánari upplýsingar um námsframboð á www.keilir.net.