Skólasetning Menntaskólans á Akureyri verður miðvikudaginn 9. september kl. 9:30. Gert er ráð fyrir að allir nemendur mæti að skólasetningu og foreldrar, ekki síst nýnema, eru hvattir til að koma.

Kynningarfundur verður fyrir foreldra nýnema og nemendur hitta umsjónarkennara að skólasetningu lokinni. Dagskráin verður betur kynnt síðar.

Fjórðubekkingar verða fjarri góðu gamni á ferð í heitari löndum. Þeir eiga að mæta á Sal kl. 8:15 föstudaginn 11. september.

Opnað verður fyrir Innu 7. september. Þá verður ljós bekkjaskipan og stundaskrár.

NJÓTIÐ SÍÐUSTU DAGA SUMARLEYFIS - VONUM AÐ ÞEIR VERÐI SUMARLEGIR.