Á Langagangi í Gamla skóla
Á Langagangi í Gamla skóla

Sumarleyfi starfsmanna hefst mánudaginn 30. júní og stendur til mánudagsins 11. ágúst. Skrifstofur skólans verða lokaðar þennan tíma.

Þurfi að koma skilaboðum til skólans má senda þau á netfangið ma@ma.is. Upplýsingar til nýnema eru hár á vef MA undir flýtilyklinum Nýnemabréf hægra megin á upphafssíðunni.

Í sumar verður unnið að ýmsum viðhalds- og endurbótaverkefnum í skólanum. Meðal annars verður gólf á Langagangi í Gamla skóla lagfært og þar verður málað, og endurbætur verða gerðar á salernum og lögnum frá þeim í Möðruvöllum, svo eitthvað sé nefnt.