Í Afgreiðslu MA hafa safnast saman ógrynni af alls kyns óskilamunum, meðal annars skartgripum, úrum, gleraugum, lyklum, hleðslutækjum og heyrnartólum, svo eitthvað sé talið. Sumt af þessu er peningalegt verðmæti og annað kann að vera tilfinningalega verðmætt.

Nemendur eru hvattir til að gá að því hvort þeir sakna einhvers þessa og nálgast það í Afgreiðslunni.

Nánar á Tapað fundið í MA