Minningarsjóður Maríu Kristínar Stephensen – tveir styrkir til háskólanáms.

 Í 5. grein skipulagsskrár fyrir Minningarsjóð Maríu Kristínar Stephensen segir svo: „Tilgangur sjóðsins er að styrkja konur útskrifaðar úr framhaldsskólum á Akureyri til háskólanáms á sviði raunvísinda eða lista“

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að veita tveimur styrkjum, hvorum að upphæð kr. 300.000.-  úr sjóðnum á árinu 2023.  Styrkirnir eru veittir annars vegar til háskólanáms á sviði raunvísinda og hins vegar til háskólanáms á sviði lista.

 Hér með er auglýst eftir umsóknum um ofangreinda styrki.  Styrkumsóknum skulu fylgja prófskírteini úr framhaldsskóla, upplýsingar um fyrirhugað nám á háskólastigi og staðfesting á inntöku í námið, ásamt greinargerð um tilgang, ástæður og framtíðarsýn umsækjanda vegna námsins.Umsóknarfrestur er til  15. september 2023 og skal umsóknum skilað rafrænt til formanns Minningarsjóðs Maríu Kristínar Stephensen á netfangið valgerdur@fsh.is

Í stjórn Minningarsjóðs Maríu Kristínar Stephensen

Valgerður Gunnarsdóttir, formaður

Rannveig Björnsdóttir

Lára Halldóra Eiríksdóttir