Ritstjórn Munins glöð í sólinni
Ritstjórn Munins glöð í sólinni

Í dag var líf og fjör í MA þar sem vorblað skólablaðsins Munsins kom út.

Í hádeginu var útgáfuhóf þar sem grillaðar voru pylsur og sumarkomuninni fagnað með tónlist og gleði. Útgáfu Munins fylgir alltaf ákveðin eftirvænting og spenna og gaman að sjá hversu áhugasamir nemendur eru við lesturinn. Fleiri myndir og myndskeið má sjá á Instagram (menntaskoliak).