Tvisvar á ári dettur á dúnalogn í löngu frímínútum í Kvosinni og má heyra hina frægu saumnál detta. Það er þegar Muninn kemur út. Það er jafnan einn af síðustu dögunum fyrir jól og einn af síðustu dögum fyrir Dimissio. Svoleiðis dagur var í dag.

Muninn er býsna fjölbreyttur að efni, eins og oftast, en útlit blaðsins er sífell nýtt listaverk og ljósmyndalistin er áberandi.

Hér er ritstjórnin ásamt skólameistara.

Ritstjórn + JMH

Og svo önnur mynd af ritstjórninni.

Ritstjórn