Félagsgreinabraut (Staðfestingarnúmer 376)

Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi, sérstaklega í félagsgreinum. Einkennisgreinar brautarinnar eru einkum félagsfræði, fjölmiðlafræði, heimspeki, saga, sálfræði, stjórnmálafræði og uppeldisfræði.

Heilbrigðisbraut (Staðfestingarnúmer 516)

Mikil áhersla er lögð á nám í heilbrigðistengdum greinum s.s. eðlisfræði, efnafræði og líffræði. Nokkuð svigrúm er til sérhæfingar í vali á brautinni. Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi og hentar sérstaklega vel þeim nemendum sem hyggja á nám í heilbrigðistengdum greinum, til dæmis í læknisfræði, hjúkrunarfræði, íþróttafræði, næringarfræði og sálfræði.

Kjörnámsbraut (Staðfestingarnúmer 382)

Á kjörnámsbraut taka nemendur ákveðinn brautarkjarna og velja sér þá sérhæfingu sem þeir kjósa að leggja áherslu á í námi sínu. Námsferill nemenda á kjörnámsbraut er skipulagður í samráði við brautastjóra. Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi, ásamt því að veita góðan og sértækan undirbúning í þeim námsgreinum sem nemendur leggja sérstaka áherslu á.

Mála- og menningarbraut (2022)

Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi, sérstaklega í tungumálum og öðrum hugvísindum. Einkennisgreinar brautarinnar eru einkum erlend tungumál, íslenska, saga, menning og miðlun.

Mála- og menningarbraut (Staðfestingarnúmer 375)

Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi, sérstaklega í tungumálum og öðrum hugvísindum. Einkennisgreinar brautarinnar eru einkum erlend tungumál, íslenska, saga, menning og miðlun.

Náttúrufræðibraut (Staðfestingarnúmer 385)

Brautin veitir góðan undirbúning fyrir nám á háskólastigi, sérstaklega í raungreinum og heilbrigðisgreinum. Mikið svigrúm er til sérhæfingar í vali á brautinni. Einkennisgreinar brautarinnar eru einkum eðlisfræði, efnafræði, líffræði og stærðfræði.

Náttúrufræðibraut (Staðfestingarnúmer 515)

Mikil áhersla er lögð á nám í náttúrufræðitengdum greinum, s.s. líffræði, efnafræði og jarðfræði. Einnig er lögð þó nokkur áhersla á stærðfræði. Mikið svigrúm er til sérhæfingar í vali á brautinni. Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi og hentar sérstaklega vel þeim nemendum sem hyggja á nám í raungreinum, til dæmis líffræði, efnafræði og jarðfræði.

Raungreina- og tæknibraut (Staðfestingarnúmer 517)

Mikil áhersla er lögð á nám í eðlisfræði, forritun og stærðfræði, með námsframboði til sérhæfingar í eðlisfræði og stærðfræði. Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi og hentar sérstaklega vel þeim nemendum sem hyggja á nám til dæmis í stærðfræði, eðlisfræði, verkfræði og tölvunarfræði.

Raungreinabraut (Staðfestingarnúmer 377)

Brautin veitir góðan undirbúning fyrir nám á háskólastigi, sérstaklega í eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði og verkfræði, með námsframboði til sérhæfingar í eðlisfræði og stærðfræði. Einkennisgreinar brautarinnar eru einkum eðlisfræði, efnafræði, líffræði og stærðfræði.