- Skólinn
- Skólinn og starfið
- Fólk og félög
- Sýn, stefnur og mat
- Hús skólans
- Námið
- Þjónusta
Brautin er stúdentsbraut þar sem áherslan er annars vegar á almennan kjarna í bóklegum greinum og hins vegar á tónlistarnám sem fer fram í tónlistarskóla. Brautin veitir góðan grunn undir almennt háskólanám, einkum á sviði tónlistar.
Til að ljúka námi á brautinni þarf að ljúka framhaldsprófi í tónlistarskóla, tveimur miðprófum eða skilgreindri námsleið í tónlistarskóla sem inniheldur að lágmarki 90 einingar í tónlist, svo sem skapandi tónlist.
Almenn inntökuskilyrði eru að nemendur hafi hlotið B eða hærra í ensku, íslensku og stærðfræði á grunnskólaprófi. Ef fleiri sækja um skólann en hægt er að innrita áskilur skólinn sér rétt til að velja þá nemendur sem hann telur hafa bestan undirbúning hverju sinni. Nánar er kveðið á um inntökuskilyrði í skólanámskrá.
Auk þess gilda þau inntökuskilyrði sem viðkomandi tónlistarskóli setur um þær námsleiðir sem teljast gjaldgengar til að geta lokið stúdentsprófi af kjörnámsbraut, þ.e. þarf að ljúka framhaldsprófi í tónlistarskóla, tveimur miðprófum eða viðurkenndri námsleið í tónlistarskóla sem inniheldur að lágmarki 90 einingar í tónlist, svo sem skapandi tónlist.
Umsækjendum og forráðafólki er bent á að til að hefja nám á brautinni þurfa nemendur að hafa trygga skólavist í tónlistarskóla. Nemendur og forráðafólk greiða skólagjöld viðkomandi tónlistarskóla.
Nám á kjörnámsbraut með áherslu á tónlist samanstendur af bóklegum kjarna, sérhæfingu í tónlist og almennu vali. Skipulagið byggir bæði á bekkjar- og áfangakerfi, svo að nemandi á brautinni fylgir bekk í bóklegum greinum en tekur tónlistarnámið hjá tónlistarskóla.
Til að ljúka námi á brautinni þarf að ljúka framhaldsprófi í tónlistarskóla, tveimur miðprófum eða skilgreindri námsleið í tónlistarskóla sem inniheldur að lágmarki 90 einingar í tónlist, svo sem skapandi tónlist.
Dæmi um námsleiðir í tónlist:
Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við námsmat sem fer fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun kennara, í samræmi við skólanámskrá.
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
Námsgrein | 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep | ||
---|---|---|---|---|---|
Danska | DANS | 2AA05 |
0 | 5 | 0 |
Enska | ENSK | 2AA05 2BB05 2FV05* 3BÁ05 |
0 | 15 | 5 |
Heilsa, lífsstíll | HEIL | 1HL02 1HN02 1HS01 1HÞ01 |
6 | 0 | 0 |
Íslenska | ÍSLE | 2MÁ04 3FR05 3LB05 | 0 | 4 | 10 |
Líffræði | LÍFF | 1GL05 | 5 | 0 | 0 |
Læsi | LÆSI | 2ME10 2NÁ10 | 0 | 20 | 0 |
Náms- og starfsval | NÁMS | 1AA01 | 1 | 0 | 0 |
Stærðfræði | STÆR | 2AJ05* 2LÁ05* |
0 | 10 | 0 |
Einingafjöldi | 75 | 12 | 54 | 15 |
* Nemandi sem fylgir HB, NB eða RTB tekur ENSK3NE05, STÆR2AL05 og STÆR2RU05.
Námsgrein | 1. þrep | 2. þrep | 3. þrep | ||
---|---|---|---|---|---|
Franska | FRAN | 1AA05 1BB05 1CC05 | 15 | 0 | 0 |
Þýska | ÞÝSK | 1AA05 1BB05 1CC05 | 15 | 0 | 0 |
Einingafjöldi | 15 | 15 | 0 | 0 |
Tónlistarnám
Nemendur ljúka a.m.k. 90 einingum í tónlist með því að ljúka framhaldsprófi, tveimur miðprófum eða annarri skilgreindri námsleið í tónlistarskóla.
Nemendur taka 20 einingar í vali, þar af skulu a.m.k. 10 einingar tilheyra sérgreinum brautarinnar. Nemendur þurfa að hafa kröfur aðalnámskrár um hlutföll hæfniþrepa til hliðsjónar við val sitt.
Röðun áfanga á annir fer eftir því á hvaða braut bekkurinn er sem nemandinn er skráður í. Nemandi getur óskað eftir því að fylgja einhverri ákveðinni braut og einnig getur hann óskað eftir að taka fleiri áfanga með bekknum sínum en krafa er gerð um í kjarna. Hægt er að sjá niðurröðun áfanga á annir á brautalýsingum hinna brautanna.
Menntaskólinn á Akureyri
Eyrarlandsvegi 28
600 Akureyri
Kt. 460269-5129
Skrifstofutími
Mán - fim 08:00 - 16:00
Föstud 08:00 - 14:00
Lokað í hádeginu 12:00 - 13:00
Lokað um helgar
Ritstjórn: Brynjar K. Óttarsson, Eyrún Huld Haraldsdóttir og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir