Mikil áhersla er lögð á nám í eðlisfræði, forritun og stærðfræði, með námsframboði til sérhæfingar í eðlisfræði og stærðfræði. Brautin veitir góðan almennan undirbúning fyrir nám á háskólastigi og hentar sérstaklega vel þeim nemendum sem hyggja á nám til dæmis í stærðfræði, eðlisfræði, verkfræði og tölvunarfræði.

Forkröfur

Almenn inntökuskilyrði eru að nemendur hafi hlotið B eða hærra í ensku, íslensku og stærðfræði á grunnskólaprófi. Ef fleiri sækja um skólann en hægt er að innrita áskilur skólinn sér rétt til að velja þá nemendur sem hann telur hafa bestan undirbúning hverju sinni. Nánar er kveðið á um inntökuskilyrði í skólanámskrá.

Skipulag

Nám á heilbrigðisbraut er fyrst og fremst bóklegt og áhersla lögð á nám í náttúrufræðigreinum. Skipulagið byggir bæði á bekkjar- og áfangakerfi.

Námsmat

Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við námsmat sem fer fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun kennara, í samræmi við skólanámskrá.

Hæfniviðmið

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • takast á við nám á háskólastigi, sérstaklega í raungreinum og stærðfræði, verkfræði- og tæknigreinum
  • taka þátt í upplýstri umræðu um umhverfismál og lífsskilyrði jarðarbúa, vísindi og tækni
  • geta tjáð sig skýrt og skipulega í ræðu og riti og fært rök fyrir skoðunum sínum á vandaðri íslensku
  • hafa tileinkað sér tölulæsi og meðferð talna
  • beita sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum
  • afla gagna, vinna úr, meta og miðla upplýsingum á gagnrýninn hátt
  • beita skapandi og gagnrýninni hugsun
  • vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðissamfélagi
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
  • afla sér nýrrar þekkingar og viðhalda henni
  • gera sér grein fyrir eigin ábyrgð í vist- og umhverfismálum og hvernig hann getur miðlað reynslu sinni og þekkingu til góðs í átt að sjálfbærni
  • nýta sér almenna og góða þekkingu á náttúruvísindum

Áfangar

Kjarni

Námsgrein  1. þrep2. þrep3. þrep4. þrep
Danska DANS 2AA05 2BB04 0 9 0  
Eðlisfræði EÐLI 1AF04 2TV06 3RA05 4NU05 4 6 5 5
Efnafræði EFNA 1AA05 2AB05
5 5 0  
Enska ENSK 2AA05 2BB05 3NE05 0 10 5  
Forritun FORR 2FO05 0 5 0  
Heilsa, lífsstíll HEIL 1HL02 1HN02 1HS01 1HÞ01 1HÖ01 
7 0 0  
Íslenska ÍSLE 2MÁ04 3FR05 3LB05 3NR05 0 4 15  
Jarðfræði JARÐ 2JA05 0 5 0  
Líffræði LÍFF 1GL05
5 0 0  
Læsi LÆSI 2ME10 2NÁ10 0 20 0  
Náms- og starfsval NÁMS 1AA01 1 0 0  
Saga SAGA 2SÖ05 0 5 0  
Siðfræði SIÐF 2HS04 0 4 0  
Stærðfræði STÆR 2AL05 2RU05 3DF05 3HE05 3LP05 3SS05 3TX05 3VH05  0 10 30  
Einingafjöldi 165 22 83 55  5

Tungumálaval

Námsgrein  1. þrep2. þrep3. þrep
Franska FRAN 1AA05 1BB05 1CC05 15 0 0
Þýska ÞÝSK 1AA05 1BB05 1CC05 15 0 0
Einingafjöldi 15 15 0 0

Frjálst val

Nemendur taka 20 einingar í vali, þar af skulu a.m.k. 10 einingar tilheyra sérgreinum brautarinnar. Nemendur þurfa að hafa kröfur aðalnámskrár um hlutföll hæfniþrepa til hliðsjónar við val sitt.

Skipulag eftir önnum

1. haust1. vor2. haust2. vor3. haust3. vor
ENSK2AA05 EFNA1AA05 EÐLI1AF04 EÐLI2TV06 DANS2AA05 DANS2BB04
HEIL1HL02 ENSK2BB05 EFNA2AB05 FORR2FO05 EÐLI3RA05 EÐLI4NU05
LÍFF1GL05 HEIL1HN02 ENSK3NE05 HEIL1HÖ01  ÍSLE3NR05 
LÆSI2NÁ10 LÆSI2ME10 HEIL1HS01 HEIL1HÞ01 ÍSLE3LB05  NÁMS1AA01 
STÆR2AL05 STÆR2RU05 ÍSLE2MÁ04  ÍSLE3FR05 STÆR3HE05  SIÐF2HS04 
FRAN/ÞÝSK1AA05 FRAN/ÞÝSK1BB05 JARÐ2JA05  STÆR3DF05 STÆR3LP05  STÆR3TX05
    SAGA2SÖ05  STÆR3SS05  VAL  VAL 
    STÆR3VH05  FRAN/ÞÝSK1CC05  VAL  VAL 
32 einingar 32 einingar 34 einingar   32 einingar 36 einingar  34 einingar