Brautin er unnin í samvinnu við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og er ætlað að veita innsýn inn í heim kvikmyndagerðar og skyldra greina. Auk kvikmyndaáherslunnar er áhersla lögð á breiða almenna menntun sem veitir góðan grunn fyrir líf og starf og áframhaldandi nám.
Meginmarkmið brautarinnar eru að búa nemendur undir frekara nám í kvikmyndagerð og skyldum greinum, s.s. fjölmiðlafræði, grafískri hönnun og auglýsingagerð. Á brautinni er lögð áhersla á fjölbreytni í kvikmyndagreinum s.s. kvikmyndarýni, handritsgerð, sviðshönnun og lýsingu, kvikmyndatöku, klippingu, hljóðvinnslu og hljóðsetningu. Einnig er lögð áhersla á samvinnu við atvinnulífið, einkum við starfandi framleiðslufyrirtæki í kvikmyndagerð.
Nemendur og forráðafólk greiða innritunar- og fjarnámsgjald í FNV.
Forkröfur
Almenn inntökuskilyrði eru að nemendur hafi hlotið B eða hærra í ensku og íslensku og C eða hærra í stærðfræði á grunnskólaprófi. Ef fleiri sækja um skólann en hægt er að innrita áskilur skólinn sér rétt til að velja þá nemendur sem hann telur hafa bestan undirbúning hverju sinni. Nánar er kveðið á um inntökuskilyrði í skólanámskrá.
Skipulag
Nám á kjörnámsbraut er bæði bóklegt og verklegt. Bóklegar greinar í kjarna og vali eru kenndar í staðnámi við MA en verklegar kvikmyndagreinar eru kenndar í lotubundnu staðnámi við FNV á Sauðárkróki. Skipulagið byggir bæði á bekkjar- og áfangakerfi.
Nemendur og forráðafólk þarf að sjá til þess að nemandi komist í lotu á Sauðárkróki og greiða ferðir og uppihald.
Námsmat
Í skólanum er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við námsmat sem fer fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun kennara, í samræmi við skólanámskrá.
Hæfniviðmið
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
- þekkja helstu grunnatriði kvikmyndagerðar og færni og leikni til að nýta þá þekkingu í starfi aðstoðarmanns sérhæfðra kvikmyndagerðarmanna
- að rita handrit að stuttri kvikmynd ásamt tökuáætlun og útdrætti á efni myndarinnar
- framkvæma alla helstu verkþætti kvikmyndaupptöku, klippingar og lokafrágang samkvæmt námsferilsbók
- geta með sjálfstæðum vinnubrögðum lagt mat á og skipulagt einstaka verkferla i kvikmyndagerð
- kunna skil á helstu hugtökum og tækjum sem notuð eru við upptöku kvikmyndaefnis á tökustað innan húss og utandyra.
- hafa þekkingu, færni og vald á að vinna ítarefni, kynningarefni, útdrátt og stiklur fyrir styttri kvikmyndaverk fyrir kvikmyndahátíð
- hafa þekkingu og vald á að gera tökuáætlun að kvikmyndaverki og færni og leikni til að skila því til þeirra fagaðila er þurfa að vinna eftir tökuáætlun á tökustað
- hafa þekkingu á uppröðun kvikmyndaefnis í klippiforriti og færni og leikni til að skila því sem kvikmyndaverki í formi stuttmynda, heimildarmynda, frétta eða auglýsinga
- hafa þekkingu og vald á góðri umgengni á tökustað og við frágang og viðskilnað eftir að kvikmyndatökum er lokið
- takast á við nám á háskólastigi, sérstaklega í sviðslistum
- taka þátt í upplýstri umræðu um umhverfismál og lífsskilyrði jarðarbúa, vísindi og tækni
- geta tjáð sig skýrt og skipulega í ræðu og riti og fært rök fyrir skoðunum sínum á vandaðri íslensku
- hafa tileinkað sér tölulæsi og meðferð talna
- beita sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum
- afla gagna, vinna úr, meta og miðla upplýsingum á gagnrýninn hátt
- beita skapandi og gagnrýninni hugsun
- vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðissamfélagi
- efla eigin sjálfsmynd og nýta styrkleika sína
- afla sér nýrrar þekkingar og viðhalda henni
- gera sér grein fyrir eigin ábyrgð í vist- og umhverfismálum og hvernig hann getur miðlað reynslu sinni og þekkingu til góðs í átt að sjálfbærni
- nýta sér almenna og góða þekkingu á náttúruvísindum
Áfangar
Kjarni
Tungumálaval
Frjálst val
Nemendur taka 20 einingar í vali, þar af skulu a.m.k. 10 einingar tilheyra sérgreinum brautarinnar. Nemendur þurfa að hafa kröfur aðalnámskrár um hlutföll hæfniþrepa til hliðsjónar við val sitt.
Skipulag eftir önnum
| | 1. haust | 1. vor | 2. haust | 2. vor | 3. haust | 3. vor |
| Danska |
|
|
|
|
DANS2AA05 |
DANS2BB04 |
| Enska |
ENSK2AA05 |
ENSK2BB05 |
ENSK2FV05 |
ENSK3AE05 |
|
|
| Heilsa, lífstíll |
HEIL1HL02 |
HEIL1HN02 |
HEIL1HS01 |
HEIL1HÞ01 |
|
HEIL1VÖ01 |
| Heimspeki |
|
|
|
|
|
HEIM2SA05 |
| Íslenska |
|
|
ÍSLE2MÁ04 |
ÍSLE3FR05 |
ÍSLE3LB05 |
|
| Kvikmyndagerð |
KVMG1HA05 |
KVMG2KL05 |
KVMG2HE05 |
KVMG2FK05 KVMG2VT05 |
|
|
| |
KVMG1KV05 |
KVMG1KT05 |
KVMG2LÝ05 |
KVMG3LO05 KVMG3TU05 |
|
|
| Líffræði |
|
|
|
|
|
LÍFF1GL05 |
| Læsi |
LÆSI2NÁ10 |
LÆSI2ME10 |
|
|
|
|
| Náms- og starfsval |
|
|
|
|
|
NÁMS1AA01 |
| Saga |
|
|
SAGA2SÖ05 |
SAGA3MG05 |
SAGA2LL05 |
|
| Siðfræði |
|
|
|
|
SIÐF2HS04 |
|
| Stærðfræði |
STÆR2AJ05 |
STÆR2LÁ05 |
STÆR3FF05 |
|
|
|
| Tungumálaval |
FRAN/ÞÝSK1AA05 |
FRAN/ÞÝSK1BB05 |
FRAN/ÞÝSK1CC05 |
|
|
|
| Valgreinar |
|
|
|
VAL |
VAL |
VAL |
| |
|
|
|
|
|
VAL |
| |
37 einingar |
37 einingar |
35 einingar |
41 eining |
24 einingar |
26 einingar |