erfðafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LÍFF1GL05
Megin efnisþættir áfangans eru erfðafræði mannsins, erfðatækni og líftækni. Byrjað er á að fara yfir grunnleggjandi þætti innan Mendelskrar erfðafræði ásamt frumuhring, frumuskiptingum og því helsta innan erfðafræði manna. Þar næst er farið ítarlega í sameindaerfðafræði þar sem fjallað er um gerð litninga, eftirmyndun, umritun og þýðingu erfðaefnis ásamt helstu gerðum stökkbreytinga. Helstu þættir erfðatækninnar eru kynntir eru fyrir nemendum og farið er í plöntu- og líftækni í kjölfarið. Að lokum er farið í nokkra algenga erfðasjúkdóma manna, orsakir þeirra, tíðni og einkenni.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum innan Mendelskrar erfðafræði
  • helstu stigum frumuhringsins
  • erfðafræði manna og annarra tvílitna lífvera
  • helstu stigum jafnskiptingar (mítósu) og rýriskiptingar (meiósu)
  • gerð erfðaefnis í heilkjörnungum og dreifkjörnungum
  • eftirmyndun, umritun og þýðingu heilkjörnunga
  • helstu gerðum stökkbreytinga í mönnum
  • helstu aðferðum innan erfðatækninnar
  • því helsta innan líftækni plantna og dýra

Leikniviðmið

  • nota hnitmiðað ýmis grunnhugtök innan erfðafræðinnar
  • þekkja hvað gerist innan hvers stigs í frumuhringnum
  • teikna og skýra hvern fasa hvorrar frumuskiptingar
  • teikna byggingu RNA og DNA
  • teikna eftirmyndunar-, umritunar- og þýðingarferli
  • öðlast innsýn í hvenær tiltekin erfðatækni er notuð
  • þekkja bæði neikvæðar og jákvæðar hliðar á notkun erfðatækni í plöntu- og dýraiðnaði

Hæfnisviðmið

  • beita til skýringar ýmsum grunnhugtökum innan erfðafræðinnar og nota kunnáttu sína í útreikning á ýmsum erfðaþáttum tvílitna lífvera
  • staðsetja tiltekna frumu í ákveðinn fasa innan frumuhringsins
  • geta útskýrt ítarlega mismunandi útkomu frumuskiptinga
  • geta útskýrt hagræðingu erfðaefnisins í heilkjarna og dreifkjarna lífverum
  • sjá samhengi á milli villa í eftirmyndunar- og umritunarferlum og gerða stökkbreytinga
  • sýna gagnrýni er varðar notkun og takmörkun erfðatækninnar
  • geta beitt gagnrýninni hugsun sem byggð er á ígrunduðum rökum
Nánari upplýsingar á námskrá.is